Þú ert ekki með Java. Þú getur sótt java fyrir vafrann þinn á www.java.com

 
  Aðalsíða About Us Um Okkur Fyrirspurnir Veftré
   


 




 

 

SR-VÉLAVERKSTÆÐI HF
         www.srv.is

SR-VÉLAVERKSTÆÐI á Siglufirði. byggir á traustum grunni og fyrirtækið er orðið yfir 70 ára. Fyrirtækið var stofnað árið 1935 og var lengst af sjálfstæð rekstareining innan Síldarverksmiðju Ríkisins, síðar SR-Mjöls,  en er nú í eigu starfsmanna verkstæðisins og nokkurra annarra aðila.  Auk vélaverkstæðis rekur fyrirtækið nú einnig byggingavöruverslun, SR-BYGGINGAVÖRUR.

 Á þessum árum höfum við öðlast gríðarlega reynslu í hverskyns málmsmíði og viðhaldi. Á verkstæðinu starfa um 15 manns og er þar að finna vélvirkja, rennismiði og stálsmiði svo nokkuð sé nefnt.

 Meðal verkefna okkar má nefna uppbyggingu og nýbyggingar á loðnuverksmiðjum, viðhald og nýsmíði í skipum og fiskvinnslum, auk margra annarra ólíkra verkefna.

 Ryðfrítt stál er okkar sérfag og við höfum smíðað hundruðir snigla, varmaskipta og ýmiskonar búnaðar þar sem þörf er á ryðfríu stáli. Sniglana frá okkur má finna víða á Íslandi og annarsstaðar í heiminum.

 Við höfum ávallt lagt áherslu á vönduð vinnubrögð og viðskiptavinir okkar hafa notið þess. Meðal nýlegra viðskiptavina okkar má nefna MAREL og BECHTEL.

 Samgöngur til og frá Siglufirði byggjast á daglegum ferðum og því er afgreiðsla á framleiðslu okkar að jafnaði skjót og örugg.
Hjá okkur getur þu einnig fengið tækniaðstoð og vinnu við teiknun og hönnun.

 

-Leitaðu til okkar og kynntu þér hvað við getum gert fyrir þig! -

 

 
 
  SR-Vélaverkstæði  Vetrarbraut 12 580 Siglufirði. S: 467-1250  Fax: 467-1727
Sendið mail á webmaster@srv.is með spurningar um vefinn
Copyright © 2006 SR- Vélaverkstæði Siglufirði
síðast uppfært: 03/09/10