Aðalsíða About Us Um Okkur Fyrirspurnir Veftré
   


 




Upp
 

 

Jarðgerðarvél

Átak til atvinnusköpunar

“ Frumsmíði á jarðgerðarvél til jarðgerðar á lífrænum úrgangi frá heimilum og fyrirtækjum “

Staðan á verkefninu:

SR-Vélaverkstæði hf   Siglufirði  hefur hafið smíði á Jarðgerðarvél  fyrir lífrænan úrgang
til nota fyrir sveitarfélög og fyrirtæki.

Smíði og hönnun gengur vel þar sem svipuð tæki hafa verið smíðuð hjá okkur fyrir annarskonar notkun Þessi reynsla fækkar umtalsvert mögulegum vandamálum við sjálfa smíðina. Hafin er hönnun á stýribúnaði og er verið að þarfagreina hversu viðamikill hann á að vera.
Fyrir liggur að panta legur, rafmangsmótora og efni í stjórnbúnað kerfisins .

Áætlað er að búnaðurinn verði kominn í prufukeyrslu í lok maí mánaðar.

  

Undirbúningur og kynning á verkefninu:

Farnar hafa verð nokkrar kynnisferðir til að skoða jarðgerð og jarðgerðarvélar.

Viðtal var í fréttum útvarps  í mars 2006 við framkvæmdastjóra SR-Vélaversktæðis Ólaf Sigurðsson um framgang þessa verksefnis og komu nokkur viðbrögð  frá sláturleyfis höfum og aðilum í sorpmálum eftir fréttir útvarps.

 Haldnir hafa verið nokkrir fundir með bæjaryfirvöldum og tækni og umhverfisnefnd á Siglufirði.  Bæjaryfirvöld eru jákvæð í að taka til endurskoðunar sorpmál  og förgun en nú er öllu sorpi ekið í Skagafjörð til urðunar með nokkuð miklum  kostnaði.  Mjög miklar breytingar eru framundan vegna sameiningar sveitarfélaganna Siglufjarðar og Ólafsfjarðar og væntanlega mun skapast enn meiri hagrænir hvatar á að taka upp jarðgerð í heimabyggð með stærra og öflugra bæjarfélagi.


 

 

 
 
  SR-Vélaverkstæði  Vetrarbraut 12 580 Siglufirði. S: 467-1250  Fax: 467-1727
Sendið mail á webmaster@srv.is með spurningar um vefinn
Copyright © 2006 SR- Vélaverkstæði Siglufirði
síðast uppfært: 03/19/10