|
| |
|
TEINASÍUR
TEINASÍUR ÚR
TRAPISULÖGUÐUM TEINUM
|
|
|
|
Teinasíur sem
SR-VÉLAVERKSTÆÐI býður byggja
á sigtisgrind, sem er sérstæð að
því leiti að sigtisteinarnir eru
breiðari að ofna en neðan (trapisulaga) og
því verður bilið á milli
þeirra víðara að neðan en ofna.
Kostirnir eru augljósir, smáagnir sem á
annað borð sleppa milli teina, eiga auðvelda
leið í burtu en festast síður á
milli teina eins og gerist þegar teinarnir eru
ferkantaðir og gapið milli teina er jafnt gegn um
síuflötinn. |
 |
|
Síuflöturinn er úr
ryðfríu stáli EN 1.4301 (AISI 304).
Teinarnir í síufletinum eru 10mm háir,
7mm breiðir að ofan en 5mm breiðir að
neðan. Lengdir síuflata geta verið allt
að 4m.
Bil milli teina er eftir óskum
kaupanda hverju sinni. Teinunum er sökkt um 2 mm
niður í undirstöðuþverbita sem
tryggir nákvæma uppröðun og mikinn
styrk í annars nettri suðu teina við
bita.
|
| |
|