|
LÖNDUNARSÍUR
HRÁEFNISSÍUR -
LOÐNUSÍUR - SNÚNINGSSÍUR
SR-VÉLAVERKSTÆÐI
býður nú löndunarsíur
sérhannaðar fyrir löndunarbúnað
fiskmjölsverksmiðja. Síuflötur er
hólkur úr ryðfrírri gataplötu,
sem snýst inni í síuhúsi.
Síuflötur er20 fermetrar, búinn til
úr 5mm þykkri gataplötu með ¢10mm
götum. Gataplötur eru með um 45%
ljósopi.
Hráefni er dælt inn í
enda síuhólksins. Innan á
síuhólknum eru blöð sem mynda spiral
eftir síunni og flytja efnið langs eftir
síuhólknum uns það fellur út
úr hólknum gegn um 400mm sver göt við
endann. Efnið fellur niður en vökvanum, sem
skilar sér út um götin á
síutromlunni, er safnað í botn
síuhússins og rennur hann niður um
víðan stút á botni.
Sían er búin 15kW
gírmótor og keðjudrifi. Æskilegt er
að hafa tíðnibreyti við mótorinn
til að geta breytt snúningshraða
síunnar eftir ástandi
hráefnis.
Síuhólkurinn er í
drifendann borinn uppi af öflugri tvöfaldri
keflalegu en inntaksendinn - renndur flötur - liggur
á tveimur öflugum stálhjólum, sem
eru með polyurethan bana.
Á báðum hliðum eru
opnanleg lok sem gera hreinsun síunnar auðvelda.
Innan við opin eru öryggisgrindur sem auðvelt
er að sptauta vatni í gegn um.
Sían er byggð á ramma
úr holprófílum. Lappir undir ramma eru
úr sama efni. Á hliðum ramma, beggja
vegna, eru festingar fyrir vinnupalla. Ramminn er úr
sandblásnu smíðastáli,
þrímálaður með
tveggjaþátta málningarkerfi.

|
Smellið á mynd til að sjá
hana í fullri stærð |
Löndunarsíur af þessari
gerð eru nú þegar í notkun á
Raufarhöfn, Reyðarfirði og í
Helguvík. Sumarið 1998 verða settar upp
tvær til viðbótar á
Siglufirði.
|