Ašalsķša About Us Um Okkur Fyrirspurnir Veftré
   


 




Upp
 

 

SR-MYREN FISKIDÆLUR

FISKIDÆLUR - LÖNDUNARDÆLUR - ÞURRDÆLUR
LOÐNUDÆLUR - SÍLDARDÆLUR

SR-VÉLAVERKSTÆÐI býður nú SR-MYREN spjaldadælur til að dæla loðnu, síld eða fiskúrgangi. Dælurnar notast ýmist sem löndunardælur til dæla bræðslufiski upp úr lest veiðiskips eða sem flutningsdælur í verksmiðjum.

MYREN BRP dælur hafa yfir 20 ára reynslu á markaðnum. Þrjár stærðir eru til af dælunum. Minnsta fiskidælan heitir BRP23, miðstærðin BRP14 og sú stærsta heitir BRP15. Til er gerð BRP25 sem hefur sömu afköst og BRP15 dælan.

SR-VÉLAVERKSTÆÐI hefur þjónað þessum dælum gegn um árin og hefur nú eignast framleiðsluréttinn á þeim og breytist nafnið um leið í SR-MYREN.

SR-vélaverkstæði á algengustu varahluti í allar gerðirnar en mun einbeita sér að BRP15 og síðar BRP14 dælunum.

Dælurnar eru framleiddar samkvæmt samningi við KVÆRNER-HETLAND í Noregi í góðri samvinnu við nokkrar íslenskar vélsmiðjur og íslenska málmsteypu. Beitt er nýjust tækni við framleiðsluna svo sem tölvustýrðum rennibekkjum og fræsivélum.

ATH: Með því að smella á myndirnar birtast þær stærri og skírari

Dælurnar eru fáanlegar með drifási fyrir rafmótor, E-útgáfa Drifbúnaður getur verið hvoru megin sem er.

Myndir sýnir gerð SR-MYREN BRP15-E-L . Dælan hefur rafmagnamótor (E) á vinstri hlið (L).

SR-MYREN BRP15-H er með vökvamótor. Vökvamótor sem fylgir dælu er STAFFA HMB060 , HMB080 eða HMB100, eftir því hvaða afls er þörf. STAFFA vökvamótorar hafa áratuga reynslu á íslensum markaði.

Myndin sýnir flutningsdælu SR-MYREN BRP15-H-R, með STAFFA HMB100 á hægri hlið.

 

 
 
  SR-Vélaverkstęši  Vetrarbraut 12 580 Siglufirši. S: 467-1250  Fax: 467-1727
Sendiš mail į webmaster@srv.is meš spurningar um vefinn
Copyright © 2006 SR- Vélaverkstęši Siglufirši
sķšast uppfęrt: 03/19/10