|
BLANDARAR
KJARNABLANDARAR
SR-VÉLAVERKSTÆÐI
býður tvær gerðir blandara sem eru
sérhannaðir til notkunar í
fiskmjölsverksmiðjum.
Gerð SS-2-A, sem er
sérhannaður til að blanda soðkjarna,
pressuköku og hálfþurrkuðu mjöli
,og gerð PSSE-1000-2 ,sem er
léttbyggðari og ætlaður til að
blanda pressuköku, hrati og soðkjarna í
fiskmjölsverksmiðjum.
SS-2-A er tveggja ása og er
mótor fyrir hvorn ás hvor mótor er
18,5kW. Á hvorum ási eru 6 skásettir
armar til að hræra í efninu. Neðan
á blandaranum eru 2 hraðastýrðir
sniglar sem stýra fyllingu í blandaranum.
Blandarahús og ásþéttihús
eru úr ryðfríu stáli en
undurstöðurammi og blandaraásar með
hræriörmum úr St 52-3 og St37-2.

|
Smellið á mynd til að sjá
hana í fullri stærð |
Blandarar af þessari gerð eru
í fiskmjölsverskmiðjunum
Síldarvinnslunnar á Neskaupstað og
Hraðfrystihúss Eskifjarðar og hjá
SR-mjöli á Seyðisfirði og í
Helguvík. Sumarið 1998 verða settir upp tveir
blandarar við nýja þurrkara á
Siglufirði.
Blandari PSSE-1000-2 er með
einum ási Á ásnum eru blandaraarmar
með skásettum blöðum, en á enda
þeirra er gormlaga rif, sem flytur efni frá
inntaksenda til úttaksenda. Skásettu
blöðin flytja efnið í
gangstæða stefnu. Saman tryggja rifið,
blöðin og armarnir blöndun efnisins. Í
úttakinu er stillanlegt spjald til að stilla
fyllingu blandarans. Við hlið úttaks er
tæmistútur. Blandarahús og
ásþéttihús eru úr
ryðfríu stáli en undurstöðurammi
og blandaraásar með hræriörmum
úr St 52-3 og St37-2.

|
Smellið á mynd til að sjá
hana í fullri stærð |
|