|
Sniglar - Stašlašar stęršir
:
Þó sniglar okkar séu
mjög stöðluð framleiðsla eru
möguleikarnir ótalmargir, þannig að
"staðlaðan" snigil er hægt að
útfæra þannig að hæfi flestum
notendum. Dæmigert snigilhús er úr 3mm
þykku ryðfríu stáli EN 1.4301 (304).
Það er til í 7 mismunandi stærðum
(þvermálum) en lengd getur verið hver sem
er, allt að 12m á samsetningar.
Lengd snigla er skilgreind sem lengd
snigilhúss, mæst milli innhliða gaflplatna.
Snigilskrúfur geta verið
úr ryðfríu stáli, venjulegu
smíðastáli - málaðar eða
heitgalvaniseraðar - eða með kjarnarör
úr stáli St52-3 en blöð úr
3-5mm ryðfríu stáli. Kjarnarörið
er þá sandblásið og
málað. Fyrir tærandi umhverfi er
málað með tveimur umferðurm af tveggja
þátta epoxy grunnmálningu og einni
umferð af tveggja þátta polyurethan
málningu.
Lengri snigilskrúfur eru bornar
uppi af millilegurm úr legubronsi (Rg7).
Milliásar eru úr stáli
St52-3.
Mótorpallar eru ýmist fyrir
beintengda mótora eða keðjudrif.
|